Jæja, ég ætlaði alltaf að skrifa um hvernig hefði gengið í fyrsta
tékkinu hjá mér eftir aðgerð.... loksins er komið að því
Ég fór sem sagt í tékk 23. okt sl og kom bara mjög vel út úr
því. Meir að segja það sem var í veseni fyrir aðgerð, þe B12
vítamínið, er komið í 150% lag. Flestir mælast að sögn Björn
Geirs í 450-600 í B12. Yfirleitt ekki hærra en í 800.
Ég var í 1106

Ójá, engar fleiri B12 sprautur í rassinn á
mér sko! Amk ekki fyrr en eftir næsta tékk sem á víst að vera
eftir 6 mánuði.
Hjúkkan sem ég talaði fyrst við og vigtaði mig hún lagði mikla
áherslu á skrúbbun húðarinnar og einhver krem. Ég er sko búin
að prófa allan fjandann í gegnum árin og finnst ekkert virka!
Ef einhver veit um krem sem VIRKAR þá má viðkomandi sko láta mig
vita. Í rauninni er eini "gallinn" við að léttast svona hratt
að húðin nær engan veginn að fylgja með

Og þið getið rétt
ímyndað ykkur manneskju sem var um 65kg of þung hvað hún var komin
með mikið af skinni til að ná utan um allt saman! Núna eru
farin um 37 kg frá því sem ég sá þyngst á vigtinni, 30 kg frá
aðgerð.
Jæja... hætt blaðrinu í bili...
kveðja að norðan, Lena